Tjörnes er skaginn milli Skjálfandaflóa og Öxarfjarðar. Auk áhugaverðrar jarðsögu svæðisins er svæðið einnig mikilvægt fyrir ýmsa fuglastofna. Ber þar helst að nefna rjúpuna en hún verpir þar í miklum þéttleika. Sjófuglar verpa við ströndina og stórar lundabyggðir eru í eyjum út af Tjörnesi, Lundey og Mánáreyjum.
Náttúrustofan stundaði rannsóknir á varpárangri og sumarafföllum rjúpna í Þingeyjarsýslum 2009-2010 og var aðal rannsóknasvæðið á Tjörnesi. Hin síðustu ár hefur náttúrustofan komið að vöktun rjúpu í samstarfi við Náttúrufræðistofnun. Vetrarfuglatalningar fara fram á strandlengju Tjörnes, einnig í samstarfi við Náttúrufræðistofnun og náttúrustofan vaktar mófugla á svæðinu.
