Náttúrutúlkun er miðlun sem nýtist vel til fræðslu úti í náttúrunni. Hún er meðal annars kennd á námskeiðum fyrir landverði þar sem áhersla er á að þjálfa verðandi landverði til að nota aðferðir náttúrutúlkunar í gönguferðum og annarri fræðslu sem boðið er upp á innan friðlýstra svæða.
Vorið 2011 gaf Náttúrustofan út bókina Náttúrutúlkun – Handbók. Handbókin fjallar um hugmyndafræði og aðferðir náttúrutúlkunar en sérstök áhersla er lögð á að staðfæra efnið að íslenskum aðstæðum. Fram til vorsins 2025 var hægt að kaupa bókina hjá Náttúrustofunni og einstaka sölustöðum en þá var pappírsútgáfu bókarinnr hætt en í staðinn er hægt að nálgast hana hér á heimasíðu stofunnar.
Fyrir vefútgáfu bókarinnar voru nokkrir kaflar bókarinnar uppfærðir og smávegis af efni bætt við.
Bókin nýtist meðal annars landvörðum, leiðsögumönnum, kennurum og öðrum sem vilja tileinka sér aðferðir náttúrutúlkunar við leiðsögn og kennslu. Gerð og útgáfa bókarinnar var á sínum tíma styrkt af Náttúruverndarsjóði Pálma Jónssonar, Vinum Vatnajökuls, Umhverfisráðuneytinu og Ferðamálastofu.
h