Árið 2011 gaf Náttúrustofa Norðausturlands út handbók í náttúrutúlkun eftir Sigþrúði Stellu Jóhannsdóttur. Fram til þessa hefur verið hægt að kaupa eintak af bókinni hjá náttúrustofunni og einstaka sölustöðum en nú hefur pappírsútgáfu bókarinnar verið hætt og í staðinn er hægt að nálgast hana hér á heimasíðu stofunnar.
Fyrir vefútgáfu voru nokkrir kaflar bókarinnar uppfærðir og smávegis af efni bætt við.
Er það von höfundar að bókin nýtist áfram þeim sem vilja tileinka sér aðferðir náttúrutúlkunar við miðlun upplýsinga og fræðslu um okkar verðmætu náttúru, og skapa um leið mikilvæg tengsl sem skilja eftir sig virðingu, væntumþykju og einstaka upplifun í náttúru Íslands.