Stofnun Rannsóknastöðvarinnar Rifs á Raufarhöfn

Föstudaginn 23. maí var haldinn stofnfundur Rannsóknastöðvarinnar Rifs, sem staðsett verður á Raufarhöfn.  Stofnunin er sjálfseignarstofnun og stofnaðilar eru Byggðastofnun, Norðurþing og Náttúrustofa Norðausturlands.

Í tengslum við átaksverkefni Byggðastofnunar á Raufarhöfn, Brothættar byggðir, hefur síðasta árið verið unnið að stofnun rannsóknastöðvar á Raufarhöfn, með það að markmiði að nýta sérstöðu Melrakkasléttu til rannsókna og styrkja um leið byggð og innviði samfélagsins. Rannsóknastöðinni er ætlað að efla rannsóknastarf á Melrakkasléttu, m.a. með því að laða að bæði innlenda og erlenda vísindamenn til dvalar í stöðinni og rannsókna á svæðinu. Náttúrufar og saga Melrakkasléttu býður upp á mikla möguleika í rannsóknum á vistkerfi norðurslóða og áhrifum loftslagsbreytinga, bæði beint og óbeint. Þá bjóða innviðir Raufarhafnar upp á góða aðstöðu fyrir stöðina. Í upphafi mun rannsóknastöðin vera til húsa í gistiheimilinu Hreiðrinu og hentar það einkar vel fyrir unga stofnun að klekjast út í rúmgóðu og notalegu Hreiðrinu. Stjórn rannsóknastöðvarinnar verður skipuð fulltrúum rannsóknastofnana og háskóla, ásamt fulltrúa sveitarfélagsins Norðurþings. Nafn rannsóknastöðvarinnar vísar til eyðibýlisins Rifs, sem stendur á nyrsta tanga á Melrakkasléttu, Rifstanga, sem jafnframt er nyrsti hluti Íslands.

Verkefnið hefur hlotið styrki frá Vaxtarsamningi Norðausturlands, Byggðastofnun, Styrktarsjóði Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands (EBÍ) og notið stuðnings Norðurþings.  Auk þess hefur starfsemin fengið úthlutað fé á fjárlögum fyrir árið 2014.

Fulltrúar stofnaðila með undirritaða skipulagsskrá. F.v. Bergur Elías Ágústsson bæjarstjóri Norðurþings, Þorkell Lindberg Þórarinsson forstöðumaður Náttúrustofu Norðausturlands og Kristján Þ. Halldórsson verkefnisstjóri hjá Byggðastofnun.

Sjá nánar um verkefnið hér.

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
WordPress Image Lightbox Plugin