Haustið 2019 hófst fuglamerkingarverkefni á vegum Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurlandi sem snýr fyrst og fremst að ferðum og dreifingu íslenskra snjótittlinga. Snjótittlingar eru veiddir og á fætur þeirra sett litmerki, rauður plasthringur með hvítum einkennisstöfum, auk hefðbundins álhrings. Síðan er treyst á að áhugasamir fuglavinir sem koma auga á óvenju litríkan snjótittlingsfót nái að lesa áletrunina og láti vita af henni. Það krefst þolinmæði að lesa á svo lítil merki á kvikum fuglum með sjónauka en aukinn áhugi á fuglaljósmyndun hefur hjálpað mikið til. Stafrænar myndavélar nútímans hafa til að bera nægan aðdrátt og hraða til að ná skörpum myndum af merkjunum. Það er því fyrst og fremst vegna ljósmynda sem tilkynningar berast um litmerkta snjótittlinga. Tveir starfsmenn Náttúrustofunnar eru þátttakendur í þessu rannsóknarverkefni og annar þeirra merkti snjótittling sem hefur fengið viðurnefnið „Þingeyski hálandahöfðinginn“.
Þingeyski hálandahöfðinginn kom í gildru þar sem snjótittlingar voru fóðraðir við Víkingavatn í Kelduhverfi þann 3. apríl 2020. Hann var merktur og hlaut einkennisstafina C52. Út frá vængmynstri var hann greindur sem karlfugl sem hafði komið úr eggi árið áður. Ekki sást til ferða hálandahöfðingjans við merkingastað næstu daga á eftir þó margir snjótittlingar kæmu þar í fóður. Það var ekki fyrr en í desember 2022 sem fyrsta tilkynning barst um fuglinn. Hann hafði verið ljósmyndaður á skíðasvæði í Cairngorms fjöllunum í Skosku hálöndunum. Hann sást svo aftur á sama stað veturinn eftir, desember 2023 og febrúar 2024. Fyrir stuttu bárust svo myndir af fuglinum á þessum sama stað og hann því búinn að halda þar til a.m.k. þrjá vetur í röð. Hann ætti nú að vera á sjötta ári sem verður að telja ágætis aldur þó vitað sé um snjótittlinga sem hafa lifað á tíunda ár.
Stóra spurningin er hvar Þingeyski hálandahöfðinginn heldur sig á sumrin, hvar eru varpstöðvar hans? Tilkynningar um merkta snjótittlinga að sumarlagi eru fátíðar enda eru þeir þá dreifðir um varpstöðvarnar sem eru að miklu leyti á óaðgengilegum svæðum. Við viljum hvetja alla sem koma auga á merkta fugla, snjótittlinga eða aðra, að koma upplýsingunum til Náttúrufræðistofnunar, sjá hér.
https://www.ni.is/is/rannsoknir/voktun-og-rannsoknir/fuglamerkingar