Náttúrustofa Norðausturlands hefur vaktað plastmengun í sjó fyrir Umhverfisstofnun frá árinu 2018. Vöktunin fer fram með athugunum á plastinnihaldi í meltingarfærum fýla (Fulmarus glacialis). Þó íslenskir fýlar verji mestum tíma ársins á Íslandsmiðum þá geta þeir flakkað víða um N-Atlantshaf, jafnvel allt til Novaya Zemlya eyjaklasans í norðvestanverðu Rússlandi, utan varptíma [iv]. Plastið sem í þeim finnst getur því verið upprunnið fjarri Íslandi.
Plast getur sært eða stíflað meltingarfæri fugla en getur líka haft óbein áhrif, m.a. vegna upptöku ýmissa óæskilegra efna sem eru í plastinu sjálfu eða sogast að plastögnunum úr umhverfinu og fuglar taka svo upp í vefi sína. Áhrifin geta verið ólík eftir því hvaða efni eiga í hlut. Þau geta tengst truflun á hormónabúskap, skertri starfsemi ónæmiskerfisins eða áhrif á atferli. Allt getur þetta svo leitt til neikvæðra áhrifa á æxlunarárangur eða afkomu fullorðinna fugla (sjá samantekt í [v]).
Fýlar eru algengir sjófuglar við Ísland og víðar á norðurslóðum. Þeir afla sér æti af yfirborði sjávar og eru þekktir fyrir að gleypa alls kyns úrgang og jafnvel rusl. Ólíkt mörgum öðrum tegundum geta fýlar, merkilegt nokk, ekki kastað upp ómeltanlegum ögnum sem berast í þá við fæðuöflun heldur safnast þær upp í maga og fóarni þar sem þær brotna flestar niður á löngum tíma og skila sér að mestu út með driti. Undantekning frá þessu er þegar fýlar æla sér til varnar eða kasta upp fæðu fyrir unga. Við það síðar nefnda færast plastagnir frá foreldri til unga. Tiltölulega auðvelt er að nálgast fýla til rannsókna þar sem þeir eru algengir og margir drepast í veiðarfærum eða finnast dauðir í fjörum [vi]. Vegna ofan talinna atriða þykja fýlar henta vel og eru viðurkennd vísitegund til rannsókna á plastmengun í hafi [iii].
Hérlendis hefur hentað vel að nýta fugla sem drukkna í veiðarfærum línubáta þar sem slík hjáveiði er aðgengileg og hægt að tímasetja dánarstund gróflega. Fengnir hafa verið fuglar sem drepast stuttu fyrir varptíma í mars, apríl eða maí því á þeim árstíma ætti uppsafnað plast að vera hvað mest og sambærilegt milli ára en auk þess er líklegast að fýlar sem lenda í veiðarfærum á þessum tíma séu af íslenskum uppruna [iv].
Árið 1997 gerðist Ísland aðili að OSPAR samningnum um verndun Norðaustur-Atlantshafsins. Í samningnum eru m.a. ákvæði um reglubundna vöktun á ástandi hafsvæðisins og er plastmengun einn þáttur sem fylgst er með. OSPAR vöktunaráætlanir fylgja ákveðnum viðmiðum um ásættanleg vistfræðileg gæði (EcoQO). Dæmi um slík viðmið er hlutfall fýla í stofni með meira en 0,1 g af plasti í meltingarfærum. Óæskilegt er að það hlutfall fari yfir 10%.
Árið 2024 barst 51 fýll til athugunar. Með þeim fuglum hafa stofunni samtals borist 245 fýlar til athugunar frá árinu 2018. Ekki er búið að fullvinna gögn frá vorinu 2024 en af þeim 194 fuglum sem skoðaðir voru á árunum 2018 – 2023 fundust plastagnir í meltingarfærum 72% fuglanna og plastið var meira en 0,1 g í 14% þeirra [i]. Það er yfir EcoQO viðmiðunarmörkum OSPAR.
Plast í meltingarvegi fýla hefur tvisvar áður verið rannsakað hérlendis. Í fyrri rannsókninni frá því í apríl 2011 fannst plast í 79% fýla (n=58) og þar af voru 28% með meira en 0,1 g [ii]. Í seinni rannsókninni, sem að vísu er frá því í október 2013 og febrúar 2014, gáfu frumniðurstöður til kynna að 90% fýlanna (n=40) hafi verið með plast í meltingarvegi og þar af 47,5% með yfir 0,1 g [v]. Þetta eru hvorutveggja hærri gildi en fram koma í yfirstandandi vöktun. Mikill meirihluti fýla í núverandi vöktun eru fullorðnir karlfuglar og magn plasts í þeim er minna en hjá yngri fuglum og kvenfuglum. Hugsanlega skýrir það að einhverju leyti lægri gildi í núverandi vöktun en að öðru leyti eru ástæður á þessum mun óþekktar. Full ástæða er til að halda vöktun áfram á meðan plastmengun í fýlum er hærri en viðmiðunargildi OSPAR segja til um.
[i] Aðalsteinn Örn Snæþórsson (2023). Plast í meltingarvegi fýla við Ísland 2023. Náttúrustofa Norðausturlands. Skýrsla unnin fyrir Umhverfisstofnun, NNA-2305.
[ii] Kühn, S. & Van Franeker, J.A. (2012). Plastic ingestion by the northern fulmar (Fulmarus glacialis) in Iceland. Marine Pollution Bulletin 64: 1252-1254. http://dx.doi.org/10.1016/j. marpolbul.2012.02.027
[iii] Provencher, J.F., Bond, A.L., Avory-Gomm, S., Borelle, S.B., Bravo Rebolledo, E.L., Hammer, S., Kühn, S., Lavers, J.L., Mallory, M.L., Trevail, A. & Van Franeker J.A. (2017). Quantifying ingested debris in marine megafauna: a review and recommendation for standardization. Analytical Methods 9, 1454-1469. https://doi.org/10.1039/c6ay02419j
[iv] SEATRACK (2023). Heimasíða um dreifingu sjófugla, skoðuð 18.12.2023. http://seatrack.seapop.no/map/
[v] Trevail, A.M., Gabrielsen, G.W., Kühn, S., Bock, A. & Van Franeker, J.A. (2014). Plastic ingestion by northern fulmars, (Fulmarus glacialis), in Svalbard and Iceland, and relationships between plastic ingestion and contaminant uptake. Norsk Polarinstitutt, Kortrapport 029.
[vi] Van Franeker, J.A. & the SNS Fulmar Study Group (2013). Fulmar Litter EcoQO monitoring along Dutch and North Sea coasts -Update 2010 and 2011. IMARES Report C076/13
[vii] Van Franeker, J.A., Jensen, J.K., Simonsen, P.J., Bravo Rebello, E.L. & Kühn S. (2022). Plastics in stomachs of northern fulmar Fulmarus glacialis collected at sea off east Greenland: latitude, age, sex and season. Marine Biology 169:45. https://doi.org/10.1007/s00227-022-04029-8.