Í tímaritinu Aquatic Ecology birtist í sumar vísindagreinin Asynchrony in the dynamics of chironomids across six locations in northeastern Iceland sem fjallar um sveiflur í þéttleika rykmýs í vötnum á Norðausturlandi. Rannsóknin byggir að stórum hluta á gögnum úr langtímavöktun Náttúrustofunnar sem staðið hefur óslitið frá árinu 2006.
Aðalhöfundur greinarinnar er Viktor Freyr Aðalsteinsson starfsmaður Náttúrustofunnar en hann lauk meistaranámi frá Háskólanum á Hólum í vor og byggir greinin á niðurstöðum meistararitgerðar hans. Viktor stundar nú doktorsnám við vatnalíffræðideild University of Wisconsin-Madison í Bandaríkjunum.
Rannsóknin byggir annars vegar á gögnum úr vöktun Náttúrustofunnar á þéttleika rykmýs í Víkingavatni, Skjálftavatni, Miklavatni og Sílalækjarvatni og hins vegar úr vöktun Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn í Ytri- og Syðriflóa Mývatns. Niðurstöður sýndu endurteknar sveiflur í þéttleika rykmýs í öllum vötnunum en breytingar fylgdust ekki að á milli vatna jafnvel þó stutt væri á milli þeirra. Á rannsóknartímabilinu minnkaði til dæmis þéttleikinn í Víkingavatni á meðan hann jókst í Skjálftavatni en bæði vötnin eru í Kelduhverfi.
Niðurstöðurnar benda til þess að aðstæður í hverju vatni fyrir sig ráði mestu um sveiflurnar. Fæðuframboð, búsvæði og samspil tegunda hefur þannig meiri áhrif á þéttleikann heldur en veðurfar og flug rykmýs á milli vatna. Þessi munur á milli vatna skiptir miklu máli fyrir fuglalíf en rykmý er mikilvæg fæða fyrir endur og aðra fugla sem lifa á skordýrum. Þegar mýið er í lægð í einu vatni getur verið nóg af því öðru. Fuglarnir geta þá fært sig á milli vatna eftir fæðuframboði. Þannig getur ósamræmið á milli vatnanna jafnað út fæðuframboð á svæðinu í heild.
Niðurstöðurnar sýna enn fremur mikilvægi langtímarannsókna. Án samfelldra gagna í nær tvo áratugi hefði ekki verið hægt að greina sveiflur af þessu tagi.
Adalsteinsson, V. F., Einarsson, Á., Ives, A. R., Kristjánsson, B. K., Sigurdardóttir, S. G., og Thórarinsson, T. L. (2026). Asynchrony in the dynamics of chironomids across six locations in northeastern Iceland. Aquatic Ecology, 60, 81. https://doi.org/10.1007/s10452-026-10321-2