Náttúrustofan þátttakandi í GróLind

Árið 2026 bættist Náttúrustofa Norðausturlands í hóp náttúrustofa víða um land sem samstarfsaðili Lands og skógar í gróðurvöktunarverkefninu GróLind. Markmið verkefnisins er að meta ástand gróður- og jarðvegsauðlinda landsins með reglulegu millibili og þróa sjálfbærnivísa um nýtingu þeirra. Land og skógur hefur umsjón með verkefninu en Náttúrustofan sér um vöktun á meirihluta reita í Þingeyjarsýslum.

Árið 2026 bættist Náttúrustofa Norðausturlands í hóp náttúrustofa víða um land sem samstarfsaðili Lands og skógar í gróðurvöktunarverkefninu GróLind. Markmið verkefnisins er að meta ástand gróður- og jarðvegsauðlinda landsins með reglulegu millibili og þróa sjálfbærnivísa um nýtingu þeirra. Land og skógur hefur umsjón með verkefninu en Náttúrustofan sér um vöktun á meirihluta reita í Þingeyjarsýslum.

Á árunum 2019–2024 lagði Landgræðslan (nú Land og skógur) út um 920 vöktunarreiti um allt land og eru vel yfir hundrað þeirra í Þingeyjarsýslum. Reitirnir þurfa að vera aðgengilegir og endurspegla algengi ólíkra óræktaðra gróðurvistgerða. Að þeim skilyrðum uppfylltum var staðsetning þeirra valin af handahófi. Hver reitur er 50 × 50 m og innan hans er að mestu ein ríkjandi gróðurvistgerð. Í reitunum eru m.a. metnir jarðvegseiginleikar, jarðvegsdýpt, gróðurhæð, gróðurþekja, tegundasamsetning, jarðvegsrof og hrjúfleiki yfirborðs, sem saman gefa mælanlegt mat á ástandi gróðurs og jarðvegs.

Á vaxtartíma gróðurs í júní til ágúst 2026 endurmældi Náttúrustofan fyrstu gróðurreiti sína í Mývatnssveit og nágrenni. Stefnt er að því að stofan endurmæli alla reiti á fimm árum og hefji þá aðra endurmælingu í beinu framhaldi svo hver reitur er mældur á um fimm ára fresti. Með tímanum fást þannig upplýsingar um breytingar á ástandi gróðurs og jarðvegs.

Heilbrigði vistkerfa

Vistkerfi eru samfélög plantna, dýra og annarra lífvera og mótast af samspili tegunda og tengslum þeirra við umhverfið. Heilbrigð gróðurvistkerfi veita ýmsa lífsnauðsynlega vistkerfisþjónustu, svo sem súrefnisframleiðslu, bindingu koltvísýrings, hreinsun lofts og temprun hitastigs [ii]. Íslensk vistkerfi eru jafnframt grundvöllur innlendrar matvælaframleiðslu, drykkjarvatns og atvinnugreina á borð við ferðaþjónustu. Til að vistkerfi haldi heilbrigði sínu og geti veitt sína vistkerfisþjónustu þarf nýting þeirra að vera hófleg, eða að minnsta kosti sjálfbær, svo hún gangi ekki á framtíðarmöguleika þeirra.

Hve mikið rask gróðurvistkerfi þola fer eftir gerð þeirra og ástandi en einnig eftir eðli og hraða breytinga. Heilbrigðar gróðurvistgerðir einkennast af samfelldri gróðurþekju, fjölbreyttum gróðri, mikilli frumframleiðni, góðri vatnsmiðlun, og eiga almennt auðveldara með að jafna sig eftir rask. Raskaðar vistgerðir eru fábreyttari, gróðurþekja þeirra gisnari og vatn og næringarefni haldast verr í jarðveginum, sem gerir þær viðkvæmari fyrir breytingum.

Hægfara hnignun lands getur verið erfitt að koma auga á. Fái slík hnignun að halda óhindrað áfram getur hún færst í aukana og orðið að umfangsmiklu rofi, t.d. uppblæstri, sem torvelt er að hefta. Með því að fylgjast með ástandi og þróun ólíkra gróðurvistgerða til lengri tíma fást viðmið um heilbrigð vistkerfi og vísbendingar um lítt sýnilega hnignun áður en neikvæð gróðurþróun verður illviðráðanleg. Þannig leggur GróLind grunn að sjálfbærri landnýtingu til framtíðar.

Heimildir

Land og skógur (2025). Ársskýrsla Lands og skógar 2024. Sótt 30. september 2026.
GróLind (2020). Sumarið 2020 [frétt af heimasíðu]. Sótt 30. september 2026.
Landvernd. Vistheimt [efni á vefsíðu félagsins]. Sótt 30. september 2026.
Landgræðsla ríkisins (2018). GróLind – Ársskýrsla 2017. Sótt 30. september 2026.

WordPress Image Lightbox Plugin