Enn bætist í tækjabúr Náttúrustofunnar, að þessu sinni var fjárfest í DJI Phantom 4 dróna. Dróni kemur til með að nýtast stofunni vel við margvísleg verkefni. Hann kemur t.d. til með að auðvelda vöktun sumra fuglastofna þar sem hægt verður að mynda varpbyggðir (t.d. hjá súlum og öðrum bjargfuglum) ofan frá eða beint framan á björgin. Einnig verður hægt að nýta hann við kortlagningu á dreifingu gróðurs í vötnum síðsumars samhliða vatnavöktun Náttúrustofunnar. Dróninn mun þar að auki nýtast vel við gerð yfirlitsmynda í tengslum við hin ýmsu verkefni, útseld sem önnur, sem Náttúrustofan tekur að sér.
Dróninn hefur verið prófaður við eðalaðstæður síðustu daga, m.a. við Skoruvíkurbjarg á Langanesi þar sem þessi mynd var tekin í gær 12. maí í tilefni þess að vöktunarmyndavélin var sett í gang.
