Vikuna 12. – 16. október gerði Náttúrustofa Norðausturlands víðreist og kynnti niðurstöður rannsókna sinna á bjargfuglum við Ísland á tveimur viðburðum.
Mánudaginn 12. október tók Náttúrustofan þátt í málþingi um stöðu og nýtingu sjófugla við Ísland sem haldið var á Hafrannsóknastofnun. Þar hélt Þorkell Lindberg Þórarinsson erindi um vöktun bjargfugla og stofnvistfræði en á málþinginu var farið yfir hlutverk stofnana, rannsóknir og sjónarmið hagsmunaaðila varðandi nýtingu og verndun sjófugla við Ísland. Nánar má lesa um málþingið á heimasíðu Náttúruverndarstofnunar en þar er einnig að finna hlekk á upptökur af fyrirlestrum á málþinginu.
Dagana 13. – 15. október kom starfsfólk náttúrustofa saman í Stykkishólmi en þar stóðu Samtök náttúrustofa (SNS) fyrir opinni ráðstefnu, náttúrustofuþingi þann 14. október. Á þinginu kynntu stofurnar nokkur af þeim fjölmörgu og fjölbreyttu verkefnum sem þær standa fyrir. Gestgjafi þingsins var Náttúrustofa Vesturlands en á landinu starfa 8 náttúrustofur í öllum landshlutum með samtals hátt í 50 starfsmenn.
Framlag Náttúrustofu Norðausturlands voru tvö erindi um bjargfugla en stofan hefur umsjón með vöktun bjargfugla á Íslandi samkvæmt samningi við Náttúruverndarstofnun. Þorkell Lindberg Þórarinsson hélt erindi um stöðu og þróun íslenskra bjargfuglastofna og Yann Kolbeinsson kynnti fyrstu niðurstöður um áhrif eggjanytja á varpárangur langvíu og stuttnefju.
Daginn fyrir þingið fóru starfsmenn náttúrustofanna í siglingu um Suðureyjar Breiðafjarðar með Sæferðum og heimsóttu Æðasetur Íslands í Stykkishólmi. Síðasta daginn var haldinn aðalfundur Samtaka náttúrustofa og áður en allir héldu til síns heima var farið í vettvangsferð þar sem skoðaður var árangur af lúpínutilraun Náttúrustofu Vesturlands og samstarfsfélaga í útjaðri Stykkishólms.

