Í tilefni þess að frétt birtist nýverið um svartfugladauða í nágrenni Þórshafnar vill Náttúrustofan hvetja fólk til að líta á fætur svartfugla sem finnast í fjörum. Unnið hefur verið að rannsóknum á ferðum íslenskra svartfugla utan varptímans í fáein ár en til þess hafa verið settir dægurritar á fót fuglanna (sjá frétt NNA). Nú þegar fuglar eru að finnast dauðir í fjörum er áríðandi að líta eftir merkjum á fótum þeirra ef ske kynni að fugli með mikilvæg gögn hafi skolað á land.
Náttúrustofan hefur sömuleiðis áhuga á að fá upplýsingar um hvar fuglar eru að finnast dauðir, í hvaða magni og um hvaða tegundir er að ræða.
