Líkamsástand og aldurshlutfall rjúpna

Náttúrustofa Norðausturlands er einn samstarfsaðila Náttúrufræðistofnunar að vöktun rjúpnastofnsins á Íslandi en vöktun hans er ákaflega mikilvæg og ein af meginforsendum sjálfbærra nytja rjúpnastofnsins. Verkefni Náttúrustofunnar lúta að talningum á rjúpu, mælingum á líkamsástandi og athugun á aldurshlutfalli fuglanna.

Náttúrustofan sér um talningar á nokkrum vegsniðum á starfssvæði sínu en talningar fara fram á vorin þegar karlfuglarnir, karrarnir, helga sér óðöl en þá eru þeir mest áberandi. Kvenfuglarnir, hænurnar, leynast betur og eru því aðeins karrar taldir í þessum talningum.

Mælingar á líkamsástandi og athugun á aldurshlutfalli fuglanna fara fram eftir að veiðitími hefst. Þá fær Náttúrustofan fugla frá veiðimönnum á svæðinu þar sem fuglarnir eru vigtaðir, mældir, kyngreindir og skoðað hvort um er að ræða fullorðna fugla eða unga frá nýliðnu sumri. Auk þessa fær Náttúrustofan að kíkja í veiðiafla veiðimanna eða fær annan vænginn af fuglunum sendan til að skoða frekar aldurshlutfall fuglanna. Með því að skoða vængina er hægt að sjá hvort um er að ræða unga rjúpu frá sumrinu eða fullorðinn fugl.

Mælingar á líkamsástandi fuglanna fyrir 2026 fóru fram nú í byrjun nóvember. Hver fugl er vigtaður, vænglengd, höfuðstærð og lengd ristarleggs (tarsus) mæld ásamt því að leitað er að ummerkjum sníkjudýra á húð og stéli. Ef mikið er af fæðu í sarpi fuglsins er hann tæmdur til að draga þyngd hennar frá þyngd fuglsins. Sarpur er útvöxtur úr vélinda fugla sem þeir nota til að geyma fæðu áður en hún ferðast lengra niður meltingarveginn. Út frá þessum mæligögnum er reiknaður holdastuðull fyrir rjúpu en lesa má nánar um niðurstöður eldri mælinga á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar.

Aðalsteinn Örn Snæþórsson við mælingar á rjúpu.

Fæða úr sarpi einnar rjúpu. Hér voru það aðallega sortuber ásamt kræki- og bláberjum sem fylltu sarpinn.

Náttúrustofan vill koma á framfæri þökkum til þeirra veiðimanna sem hafa lánað fugla til mælinga, sent vængi eða gefið leyfi til að skoða aflann. Áfram verður tekið við vængjum til skoðunar á aldurshlutfalli rjúpu á meðan veiðitíma stendur. Þeir sem vilja senda inn vængi og fá aldursgreiningu á sínum afla er bent á að hafa samband við Aðalstein (alli@nna.is).

WordPress Image Lightbox Plugin