Á dögunum barst Náttúrustofunni könguló sem starfsmenn Orkuveitunnar höfðu rekist á í brunni við Kísilskemmuna. Köngulóin líktist einna helst ofvaxinni húsakönguló en við nánari greiningu hjá Erlingi Ólafssyni skordýrafræðingi hjá Náttúrufræðistofnun Íslands kom í ljós að um var að ræða skemmukönguló (Tegenaria atrica) sem er náskyld íslensku húsaköngulónni (Tegenaria domestica).
Skemmuköngulóin hefur á undanförnum árum náð fótfestu hér á landi og er hana helst að finna í hlýjunni í Hveragerði. Þær berast reglulega til landsins með varningi og hafa því víða tekið sér bólfestu í vöruskemmum en hafa einnig fundist í gróðurhúsum.
Á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands má finna frekari fróðleik um skemmuköngulóna.
