Náttúrustofa Norðausturlands hefur vaktað plastmengun í sjó fyrir Umhverfis- og orkustofnun (áður Umhverfisstofnun) frá árinu 2018 en verkefnið er á vegum OSPAR. Vöktunin byggir á athugunum á plastmagni í meltingarfærum fýla (Fulmarus glacialis) en fýlar henta einkar vel í vöktun á plasti í hafi. Ástæðan er sú að fýllinn aflar sér eingöngu fæðu á hafi og má því gera ráð fyrir að plast í meltingarfærum hans sé þaðan komið. Hann aflar sér fæðu af yfirboði þar sem plastið flýtur um og hann ælir ekki ómeltanlegum fæðuleifum til þess eins að losa sig við þær. Hann ælir aðeins sér til varnar á varptíma en frá hausti og fram á vor getur plast hins vegar verið að safnast saman upp í maga hans og fóarni. Veiðimenn línubáta hafa útvegað Náttúrustofunni fýla sem hafa drepist í veiðarfærum bátanna síðla vetrar.
Frá upphafi vöktunarinnar hefur krufning fýlanna annað hvort farið fram á Náttúrustofunni eða í Hollandi en þar eru reglulega haldnir vinnufundir þeirra sem sinna þessari vöktun í OSPAR löndunum. Við krufninguna eru einnig gerðar ítarlegar mælingar á ástandi fuglanna. Krufning á fýlum frá 2026 fór að þessu sinni fram á Náttúrustofunni þar sem Aðalsteinn Örn Snæþórsson naut aðstoðar Suse Kühn líffræðings, sem sérhæft hefur sig í rannsóknum á fýlum, og Lineke Begeman dýralæknis og meinafræðings sem báðar komu hingað til lands frá Hollandi.

Polarflu
Aðal erindi þeirra til Íslands að þessu sinni var hins vegar að afla sýna úr heilbrigðum sjófuglum við Ísland til að sjá hvort þeir hafi komist í snertingu við skæða fuglaflensu og myndað mótefni gegn veirunni. Samhliða krufningu fýlanna voru því einnig tekin úr þeim sýni til nánari greiningar í Hollandi en það er hluti af alþjóðlegu samstarfsverkefni sem ber heitið Polarflu. Markmið Polarflu er að fylgjast með og rannsaka útbreiðslu og áhrif bráðsmitandi fuglaflensu á norðurslóðum og Suðurskautslandinu, m.a. með því að greina hvernig flensuveiran berst með farfuglum til einangraða svæða við heimskautin og hvaða áhrif hún getur haft á dýralíf þar. Verkefninu er stýrt af Erasmus Medical Center í Hollandi í samstarfi við dýralæknis- og hafrannsóknastofnanir Wageningen háskóla (Wageningen Bioveterinary Research og Wageningen Marine Research). Auk Náttúrustofu Norðausturlands taka sjö aðrar rannsóknastofnanir á Íslandi þátt í verkefninu, m.a. með því að taka blóð- og stroksýni úr sjófuglum samhliða öðrum rannsóknum á þeim.
Í lok heimsóknar þeirra flutti Lineke Begeman áhugavert erindi um fuglaflensu, þróun hennar og útbreiðslu í heiminum, Polarflu verkefnið og markmið þess.
