Málþing um sjófugla og Náttúrustofuþing í Stykkishólmi

Vikuna 12. – 16. október gerði Náttúrustofa Norðausturlands víðreist og kynnti niðurstöður rannsókna sinna á bjargfuglum við Ísland á tveimur viðburðum.

Mánudaginn 12. október tók Náttúrustofan þátt í málþingi um stöðu og nýtingu sjófugla við Ísland sem haldið var á Hafrannsóknastofnun. Þar hélt Þorkell Lindberg Þórarinsson erindi um vöktun bjargfugla og stofnvistfræði en á málþinginu var farið yfir hlutverk stofnana, rannsóknir og sjónarmið hagsmunaaðila varðandi nýtingu og verndun sjófugla við Ísland. Nánar má lesa um málþingið á heimasíðu Náttúruverndarstofnunar en þar er einnig að finna hlekk á upptökur af fyrirlestrum á málþinginu.

Dagana 13. – 15. október kom starfsfólk náttúrustofa saman í Stykkishólmi en þar stóðu Samtök náttúrustofa (SNS) fyrir opinni ráðstefnu, náttúrustofuþingi þann 14. október. Á þinginu kynntu stofurnar nokkur af þeim fjölmörgu og fjölbreyttu verkefnum sem þær standa fyrir. Gestgjafi þingsins var Náttúrustofa Vesturlands en á landinu starfa 8 náttúrustofur í öllum landshlutum með samtals hátt í 50 starfsmenn.

Framlag Náttúrustofu Norðausturlands voru tvö erindi um bjargfugla en stofan hefur umsjón með vöktun bjargfugla á Íslandi samkvæmt samningi við Náttúruverndarstofnun. Þorkell Lindberg Þórarinsson hélt erindi um stöðu og þróun íslenskra bjargfuglastofna og Yann Kolbeinsson kynnti fyrstu niðurstöður um áhrif eggjanytja á varpárangur langvíu og stuttnefju.

Daginn fyrir þingið fóru starfsmenn náttúrustofanna í siglingu um Suðureyjar Breiðafjarðar með Sæferðum og heimsóttu Æðasetur Íslands í Stykkishólmi. Síðasta daginn var haldinn aðalfundur Samtaka náttúrustofa og áður en allir héldu til síns heima var farið í vettvangsferð þar sem skoðaður var árangur af lúpínutilraun Náttúrustofu Vesturlands og samstarfsfélaga í útjaðri Stykkishólms.  

Starfsfólk Náttúrustofa fyrir framan Fosshótel Stykkishólm þar sem Náttúrustofuþing 2026 var haldið.
Róbert A. Stefánsson forstöðumaður Náttúrustofu Norðvesturlands við tilraunareiti þar sem fylgst er með árangri af mismunandi aðgerðum við að halda alaskalúpínu í skefjum á svæði í útjaðri Stykkishólms.
WordPress Image Lightbox Plugin