Miðvikudaginn 11. júní s.l. fóru sex starfsmenn Náttúrustofu Norðausturlands út í Flatey á Skjálfanda til að gera úttekt á kríuvarpi í eyjunni. Verkefnið er hluti af langtíma verkefninu vöktun náttúruverndarsvæða sem er samstarfsverkefni Náttúrufræðistofnunar og náttúrustofa á landinu. Flatey er öll á náttúruminjaskrá vegna fjölbreytts fuglalífs og söguminja sem þar er að finna og þar hefur lengi verið stórt kríuvarp. Náttúrustofan gerði samskonar úttekt á hluta kríuvarpa á Melrakkasléttu árið 2023 og það ár voru gerðar sambærilegar úttektir í kríuvörpum á fleiri stöðum á landinu, t.d. á Snæfellsnesi.
Flatey á Skjálfanda er lág og flatlend eyja, um 2,62 km að flatarmáli, með lónum innan malarkamba en hæst rís eyjan 22 m yfir sjávarmáli. Byggð var í Flatey frá 12. öld og fram til 1967 þegar síðustu íbúar fluttu af eyjunni. Fjórtán árum áður hafði byggð lagst af í Flateyjardal en aðeins eru um 2,5, km frá landi og út í eyju. Á eyjunni standa nokkur hús sem er vel við haldið af afkomendum fyrrum íbúa eyjarinnar en einnig er þar kirkja sem var flutt þangað úr Flateyjardal eftir að byggð lagðist þar af.
Fyrir ferðina var búið að afmarka helsta varpsvæði kríunnar í samráði við staðkunnuga og setja niður fasta punkta með 60 m millibili innan þess svæðis. Þegar á staðinn var komið var hægt að kortleggja varpsvæðið enn betur og voru gerðar mælingar á öllum punktum innan endanlega skilgreinds varpsvæðis. Mælingar fóru þannig fram að staur var stungið niður á punktinn og síðan genginn 8 m radíus út frá staurnum og leitað að hreiðrum. Fjöldi hreiðra og eggja í hverju hreiðri var skráður á hverjum punkti. Með þessu verður hægt að mæla þéttleika kríuhreiðra og meta heildarfjölda þeirra innan varpsvæðisins. Á hverjum punkti, þar sem fundust hreiður, var að auki gert svokallað vatnspróf á einu eggi til að meta útungunarstig þess og meta þannig hversu langt er liðið á varpið. Úrvinnsla og niðurstöður bíða svo síðari tíma.
Á meðan á mælingum stóð var einnig fylgst grannt með öðru fuglalífi í eyjunni og sáust alls 42 tegundir fugla en mest bar á lunda og kríu. Það voru mikil forréttindi að fá að heimsækja Flatey á þessum fallega júnídegi þegar eyjan iðar öll af fuglalífi og fjölbreyttur fuglasöngur fyllir loftið. Hvalaskoðunarfyrirtækið Gentle Giants sá um að koma starfsmönnum og búnaði heilu og höldnu milli lands og eyju á einum af RIB bátum fyrirtækisins.