Á dögunum sat starfsmaður Náttúrustofunnar námskeið í söfnun og greiningu á púpuhömum rykmýs. Leiðbeinendur voru heimsþekktir sérfræðingar á þessu sviði, þeir dr. Peter Langton og dr. Les Ruse frá Bretlandseyjum, sem jafnframt eru höfundar helstu greiningarlykla sem notast er við í þessum fræðum. Námskeiðið sóttu 18 sérfræðingar í vatnalífi víða að af landinu en námskeiðið var á vegum Hafrannsóknastofnunar.
Hægt er að nýta púpuhami rykmýs til að svara spurningum um áhrif ýmissa þátta á lífríki vatna, s.s. vegna mengunar og framkvæmda en tegundir rykmýs þola misvel hvers kyns mengun. Því má segja ýmislegt um ástand vatna út frá því hvaða tegundir eru þar að finna. Söfnun púpuhama og meðhöndlun er nokkuð auðveld, því má segja að greining þeirra sé fljótvirk og hagkvæm leið til þess að kanna bæði eðli og ástand vatna.
Fyrir námskeiðið voru um 90 tegundir rykmýs þekktar hér á landi. Á námskeiðinu fundust hins vegar 10 áður óþekktar tegundir og eru þekktar tegundir því um 100 í dag. Ein af þessum nýju tegundum, Chironomus brevidentatus, fannst í sýni sem tekið var á Þeistareykjum árið 2009 og var í fórum Náttúrustofunnar.
Ekki er ólíklegt að fleiri nýjar tegundir fyrir landið komi fram þegar púpuhamir úr fleiri vötnum, ám og tjörnum verða á næstu árum greindir af öllum þeim nýju púpuhamasérfræðingum sem sátu þetta gagnlega námskeið.
Nánar má lesa um námskeiðið hér heimasíðu Hafró.